Rífandi kjaft í yfir 10 ár
Fúsíjama TV

Bestir. Flottastir. Alltaf. Allsstaðar.

NBA stjörnur sem létust 2015

[tps_title]Harry Gallatin[/tps_title]

Harry Gallatin lék 9 ár í NBA deildinni á árunum 1948 til 1958, mest megnis með New York Knicks, en auk þess lék hann eitt ár með Detroit Pistons. Hann var 7 sinnum valinn í stjörnuleikinn og leiddi deildina í fráköstum tímabilið 1953-1954. Eftir að hann lagði skóna á hilluna fór hann í þjálfun og starfaði við það fram til 1970. Hann var valinn þjálfari ársins í NBA deildinni árið 1963. Hann lést 7 október 2015 í kjölfarið á skurðaðgerð, 88 ára að aldri.