Ísland

Tæknivillan á Ólaf Ólafsson

Fékk Ólafur Ólafsson tæknivillu fyrir að horfa á dómarann?

Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, fékk tæknivillu í gær í bikarleiknum við Keflavík fyrir að því er virðist að hafa gefið dómaranum illt augnaráð. Þetta var jafnframt fimmta villan hans í leiknum.

Í samtali við karfan.is eftir leikinn hafði hann þetta að segja um atvikið.

Mér fannst tæknivillan vera svolítið gróf hérna í endann. Ég var nú búinn að haga mér mjög vel og ég er yfirleitt mjög æstur. Ég hef örugglega litið of harkalega á hann, ég veit það ekki, en hann gaf mér tæknivillu. En ég meina við unnum, mér er alveg sama þótt ég hafi fengið tæknivillu.

Ef rétt reynist þá er Ólafur kominn í hóp með ekki verri manni en öðlingnum Rasheed Wallace sem einnig fékk einu sinni tæknivillu fyrir að horfa á dómarann.

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Og yfir í allt annað

Ísland

2021-2022 tímabilið í Subway-deild kvenna byrjar í kvöld og því ákváðum við að kasta saman í eina afar óvísindalega samsetta spá sem er þó...

Ísland

2021-2022 tímabilið í [Insert sponsor name here]-deild karla er handan við hornið og því ákváðum við að kasta saman í eina afar vísindalega samsetta...

Ísland

Eru þetta bestu íslensku troðslurnar frá upphafi? Mögulega klárlega.

Ísland

Darryl Lewis með stórkoslega frammistöðu.

Fúsíjama TV er frjálst og óháð körfuboltablogg sem þorir meðan aðrir þegja. Copyright © Fúsíjama TV 2013-2034

Exit mobile version