Leikstjórnandinn Jose Medina Aldana fór mikinn í sigurleik Hamars á Selfossi í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni 1. deildarinnar í gær en samkvæmt tölfræðiskýrslunni var hann með 33 stig, 10 fráköst og heilar 20 stoðsendingar.
Ekki liggur fyrir hvort þessar 20 stoðsendingar væru Íslandsmet en til samanburðar á David Edwards heitinn metið í efstu deild en hann gaf 18 stoðsendingar í einum leik árið 1996.
Nú hefur stundum verið sagt að það sé til lygi, haugalygi og svo íslensk körfuboltatölfræði og því hljóta menn að spyrja sig hvort Medina hafi raunverulega gefið 20 stoðsendingar í leiknum.
Það ætti að vera tiltölulega auðsvarað því leikinn má finna á Youtube síðu Selfoss TV.
Farið var yfir allar stoðsendingarnar sem voru skráðar á Jose og þær bornar saman við upptökuna.
| Tími | Stigaskor | Stoðsending? | Skýring |
| 00:15:40 | 12 | Já | |
| 00:17:00 | 14 | Já | |
| 00:21:10 | 21 | Nei | Leikmaður fer ekki strax í skot, stendur og spáir í möguleikunum og dripplar svo að körfunni. |
| 00:21:40 | 23 | Já | |
| 00:24:23 | 26 | Já | |
| 00:25:25 | 29 | Já | |
| 00:26:53 | 32 | Líklegast | Kemst framhjá varnarmanni eftir að hann grípur, varnarmaður nær ekki aftur jafnvægi. |
| 00:36:32 | 41 | Já | |
| 00:40:00 | 47 | Já | |
| 00:40:18 | 59 | Já | |
| 01:03:20 | 55 | Já | |
| 01:07:18 | 66 | Já | |
| 01:15:45 | 72 | Já | |
| 01:16:40 | 75 | Líklegast ekki | Skotmaður feikar og dribblar til hliðar áður en hann skýtur. Varnarmaður nær að ná aftur jafnvægi og verjast skotinu. |
| 01:20:00 | 77 | Já | |
| 01:21:05 | 81 | Já | |
| 01:31:40 | 91 | Nei | Jose gefur ekki sendinguna heldur Óli Gunnar Gestsson. |
| 01:35:03 | 93 | Já | |
| 01:41:00 | 98 | Já | |
| 01:51:15 | 105 | Já |
Niðurstaðan er því að líklegast var Jose með 17 stoðsendingar í leiknum og því kominn í hóp með leikmönnunum á borð við Pavel Ermolinski og Jón Kr. Gíslasyni sem báðir gáfu mest 17 stoðsendingar í einum leik. 18 stoðsendinga (Íslands?)met David heitins Edwards er því hólpið í bili.
Mynd: Bára Dröfn / Karfan.is
