Eloy Doce Chambrelan, fyrrum þjálfari FSu, skaut fast á Skallagrím á Twitter í dag og gagnrýndi að stjórnin hefði tekið þá leikmenn sem kvörtuðu undan Ricardo González Dávila, sem rekinn var frá Skallagrím um miðjan janúar, fram yfir hann. Með færslunni fylgdi myndband úr leik liðsins við Val þar sem leikmaður Skallagríms skokkaði all letilega í vörn sem endaði með auðveldri körfu Valsara. Skallagrímur tapaði leiknum 77-73.
Ísland
Fyrrum þjálfari FSu skýtur á Skallagrím
Skallagríms-dramað er gjöf sem heldur áfram að gefa fyrir aðdáendur sápuópera.
Og yfir í allt annað
Ísland
2021-2022 tímabilið í Subway-deild kvenna byrjar í kvöld og því ákváðum við að kasta saman í eina afar óvísindalega samsetta spá sem er þó...
Ísland
62 sinnum hefur verið keppt um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna. Getur þú talið upp meistaraliðin?
