Connect with us

Hi, what are you looking for?

Ísland

Leikmaður Vestra rotaður

Nökkvi Harðarsson, leikmaður Vestra, var fluttur á brott með sjúkrabíl í kvöld eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg þegar hann reyndi að stíga út Fannar Helgason, miðherjann stæðilega hjá ÍA, í frákasti.

fannar-helgason-johann-fridrikssonFannar Helgason glímir við Vestfirðinga. Mynd úr safni.

Nökkvi Harðarsson, leikmaður Vestra, var fluttur á brott með sjúkrabíl í kvöld eftir að hafa fengið slæmt höfuðhögg þegar hann steig út Fannar Helgason, miðherjann stæðilega hjá ÍA, í frákasti.


Myndbrot tekið úr útsendingu ÍA TV

Vestramenn hafa verið virkilega óheppnir með meiðsli í vetur og svo þunnskipaðir voru þeir í leiknum að þjálfari liðsins, hinn 38 ára gamli Yngvi Gunnlaugsson, var í búning. Þeir náðu þó þjappa sér saman við brotthvarf Nökkva og unnu að lokum mikilvægan 77-82 sigur, sem var jafnframt þeirra fyrsti í vetur.

Þetta er að minnsta kosti í annað skipti í október sem leikmaður þarf að yfirgefa leik með sjúkrabíl eftir þungt höfuðhögg en Stefán Karel Torfason, leikmaður ÍR, fékk eins og frægt er þungt högg á móti Snæfell í byrjun október og verður frá í talsverðan tíma.

Og yfir í allt annað

Ísland

2021-2022 tímabilið í [Insert sponsor name here]-deild karla er handan við hornið og því ákváðum við að kasta saman í eina afar vísindalega samsetta...

Ísland

Leikstjórnandinn Jose Medina Aldana fór mikinn í sigurleik Hamars á Selfossi í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni 1. deildarinnar í gær en samkvæmt tölfræðiskýrslunni...

Ísland

Eru þetta bestu íslensku troðslurnar frá upphafi? Mögulega klárlega.

Ísland

Stórskemmtileg netþáttaröð frá Gnúpverjum.