[tps_header]Árið 2015 var slæmt fyrir gamlar NBA stjörnur og þjálfara en þá féllu frá nokkur þekkt nöfn.[/tps_header]
[tps_title]Anthony Mason[/tps_title]
Anthony Mason var þekktastur fyrir veru sína hjá Knicks á 10 áratugnum en hann lék einnig með Efes Pilsen, New Jersey Nets, Denver Nuggets, Marinos de Oriente, Long Island Surf, Charlotte Hornets, Milwaukee Bucks og Miami Heat á 14 ára atvinnumannaferli sínum. Hann var valinn í 3. All-NBA liðið og 2. Varnarliðið árið 1997 auk þess sem hann lék í stjörnuleiknum 2001. Mason lést 28. febrúar 2015.
[tps_title]Jerome Kersey[/tps_title]
Jerome Kersey lék í 17 ár í NBA, lengst af með Portland Trail Blazers eða 11 ár. Hann fór tvisvar í Finals með þeim og varð NBA meistari með Spurs árið 1999. Kersey lést 18. febrúar 2015, 52 ára að aldri, af völdum blóðtappa.
[tps_title]Moses Malone[/tps_title]
Moses Malone var ein af súperstjörnum NBA deildarinnar á níunda áratugnum og leiddi 76ers til NBA titilsins árið 1983. Hann var þrívegis valinn besti leikmaður deildarinnar og var 12 sinnum valinn í stjörnuleikinn auk þess að vera valinn einn af 50 bestu leikmönnum deildarinnar á fyrstu 50 árum hennar. Moses lést úr hjartaáfalli 13. september 2015. Eftir dauða hans lét Bob Lanier þessi orð falla.
„It’s the topic nobody wants to address. How many people have we seen in our lifetime who are big and really tall and are 70-something years old? Not many. That’s because people [my size] don’t live that long.“
[tps_title]Darryl Dawkins[/tps_title]
Darryl Dawkins var vel þekktur fyrir brotin körfuboltaspjöld og litríkar nafnagiftir á troðslum. Dawkins lést, líkt og fyrrum samherji hans Moses Malone, úr hjartaáfalli 27. ágúst 2015, 58 ára að aldri.
[tps_title]Jerry Tarkanian[/tps_title]
Jerry Tarkanian var þekktari fyrir skrautlegan feril sinn sem þjálfari í háskólaboltanum heldur en veru sína í NBA. Los Angeles Lakers bauð honum þó þjálfarastöðu sína árið 1977, sem hann hafnaði. 15 árum síðar var hann svo ráðinn til San Antonio Spurs eftir að hafa brennt allar brýr að baki í háskólaboltanum. Hann var rekinn eftir einungis 20 leiki eftir að hafa lent í deilum við eiganda liðsins um nauðsyn þess að fá reyndari leikstjórnanda í liðið. Hann lést 11. febrúar 2015, 84 ára að aldri.
[tps_title]Flip Saunders[/tps_title]
Flip Saunders þjálfaði í 17 ár í NBA deildinni, þar af 11 hjá Minnesota Timberwolves. Fram til 2018 var hann eini þjálfarinn í sögu liðsins sem hafði leitt það í úrslitakeppnina, en þangað fór hann með liðið 8 ár í röð. Hann lést 25. október 2015 úr krabbameini, 60 ára að aldri.
[tps_title]Roy Tarpley[/tps_title]
Roy Tarpley var einn besti leikmaður Dallas Mavericks á árunum 1986-1990 en í byrjun 1990-91 tímabilsins var hann dæmdur í bann fyrir eiturlyfjanotkun. Honum var hleypt aftur inn í deildina árið 1994 en fékk ævilangt bann frá deildinni í desember 1995 vegna eiturlyfjanotkunar. Hann lést 8. janúar 2015, 50 ára að aldri.[tps_title]Harry Gallatin[/tps_title]
Harry Gallatin lék 9 ár í NBA deildinni á árunum 1948 til 1958, mest megnis með New York Knicks, en auk þess lék hann eitt ár með Detroit Pistons. Hann var 7 sinnum valinn í stjörnuleikinn og leiddi deildina í fráköstum tímabilið 1953-1954. Eftir að hann lagði skóna á hilluna fór hann í þjálfun og starfaði við það fram til 1970. Hann var valinn þjálfari ársins í NBA deildinni árið 1963. Hann lést 7 október 2015 í kjölfarið á skurðaðgerð, 88 ára að aldri.
[tps_title]Earl Lloyd[/tps_title]
Earl Lloyd var fyrsti svarti leikmaðurinn í sögu NBA en hann spilaði sinn fyrsta leik árið 1950 fyrir Washington Capitals. Hann varð NBA meistari með Syracuse Nationals árið 1955. Earl lést 26. febrúar 2015, 86 ára að aldri.[tps_title]Jack Haley[/tps_title]
Jack Haley lék með Chicago Bulls, New Jersey Nets, Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs, mestmegnis sem varamaður. Hann var einna þekktastur fyrir vinskap sinn við Dennis Rodman þegar þeir léku saman hjá Spurs og Bulls en hann vann einnig titil með hinu fyrnarsterka 1996 Bulls liði sem vann 72 leiki í deildinni. Jack lést 15. mars 2015, 51 árs að aldri[tps_title]John ‘Hot Rod’ Williams[/tps_title]
John ‘Hot Rod’ Williams var einn af bestu sjöttu leikmönnum níunda og 10 áratugarins með Cleveland Cavaliers en hann var á einum tímapunkti launahæsti leikmaður deildarinnar með tvöfalt hærri laun en Michael Jordan. Hot Rod lést 11. desember 2015, 52 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein.
[tps_footer][/tps_footer]
